Allir hafa sín takmörk, sumir eru bara takmarkaðri en aðrir!
Gleðilegt sumar!Anna Lóa
Ég er orðin alveg glötuð í þessu bloggi. Með tilkomu Fésbókarinnar þá hefur þetta alveg dottið upp fyrir. Ætla að taka mér formlega blogg-pásu
Hafið það gott í sumar og farið varlega.
Love, A
Gleðilegt ár!Anna Lóa
Gleðilegt ár elsku vinir og takk fyrir það gamla
Love, A
Gleðileg jólinAnna Lóa
Gleðileg jól elskurnar mínar og hafið það sem allra best yfir hátíðirnar
Love, A
Það kom sá dagur :)Anna Lóa
Jæja, þá er ég komin heim úr síðasta prófi þessarar annar. Fjölmenning og fagstörf heitir áfanginn og mér gekk svo sem ágætlega.Líður stórkostlega, keyrði heim með bros á vör og hlakka hrikalega til að eiga æðislega helgi með Krumma mínum. JR fór til pabba síns og við ætlum að vera í chilli og kannski að jólast eitthvað.... eða hvað sem okkur dettur í hug.
Það er dásamlegur snjór yfir öllu og kyrrt og fallegt veður, verður ekki betra. Ég ætla skella mér í ljós og lita augabrúnir svo ég fari að þekkja sjálfan mig aftur hehe. Er að lenda í því að krossbregða þegar ég lít í spegil og sé föla, andlitslausa manneskju með bauga niður á hné. En nú verður gengið í málið!
Hlakka líka mikið til að verða í fyrsta sinn svona alvöru húsmóðir, þessi sem bakar og græjar. Ætla njóta mín í botn með JR í fríinu.

Love, A
Styttist...Anna Lóa
Jæja nú er bara eitt próf eftir og það er á föstudaginn í fjölmenningunni. Ég get ekki beðið eftir að þessu ljúki!Vil óska afmælisbörnunum til lukku með dagana sína. Solla mín var 3ja des og Rúnar þann 8unda. Svo styttist í afmælið hjá heimasætunni en það er þann 19. Dásamlegt að vera umvafin bogmönnum

Love, A
Bráðum koma blessuð jólin...Anna Lóa
Við erum komin á fullt í það að skreyta hjallinn. Ákveðið var að hafa hvíta stemningu og það kemur ótrúlega vel út.Búin í tveimur prófum og á tvö eftir. Tölfræði próf á mánudaginn, guð hjálpi mér

JR er bara nokkuð hress. Hún er búin að vera í greiningu núna í yfir mánuð og loksins fékkst niðurstaða í það. Elsku prinsessan mín þjáist af svona miklum athyglisbresti. Sem betur fer er bara komin botn í málið og hægt að fara vinna með hana útfrá því.
Ætla fara þykjast læra.... later!
Love, A
Ó mæ!Anna Lóa
Mér er rétt að takast að hrista af mér kjánahrollinn sem tók sér bólfestu í mér við það að horfa á þennan annars ágæta borgarafund.
Hafði t.d. mjög gaman af ræðu Þorvalds Gylfasonar. En jesús minn! Fundarstjórnandinn og fyrirspurninar.... er verið að grínast í mér
? Ég get hins vegar alveg verið róleg svo lengi sem enginn fer nú að "tala fyrir hönd þjóðarinnar" og gefa í skyn að öll þjóðin væri nú saman komin þarna í salnum. Vil benda þessu fólki á að tala fyrir sjálfan sig!! Ég hef ekkert umboð gefið svo að talað sér fyrir mína hönd!!
Var mjög ánægð með Ingibjörgu þegar hún reyndi nú að koma mér og líklega fleirum til bjargar með því að minna fólk á þetta.
Og hvað var með þessa tillögu fundarstjóra að koma inn einhverjum fyrir hönd þjóðarinnar til að sitja á fundum, ha, bíddu, ha, ég skil ekki!?! Hvernig á að standa fyrir því? Ætti að verða þjóðarkosning um hvort einhver ætti að sitja þessa fundi og önnur þá varðandi hverjir ættu að gera það? Og þetta ætti líklega að gerast á svipuðum tíma og kosið yrði á ný. Fyrirgefið en hvenær á að vera tími til að vinna einhver verk?? Hvað fór langur tími núna í að fjalla um og fella vantraustillöguna?

Svo fór Margrét Pétursdóttir að fara fram á að afnema bankaleyndina!?! Viljum við það? Gerir hún sér grein fyrir hvað það þýðir? Sama kona talar um að búið sé að afnema launaleyndina.... það er ekkert búið að því! Það er ennþá launaleynd hjá einkafyrirtækjum. Hún talar um að ríkisstjórnin segi af sér og jú jú jafnvel stjórnarandstaðan líka. Ok.... hverjir eiga að stýra landinu????? Á að taka upp beint lýðræði og hafa bara þjóðarkosningu um alla skapaða hluti? Vill einhver halda því fram að það sér farsæl lausn? Heldur fólk að þjóðin sé svona agalega sammála um alla hluti og vel inni í öllum málum og að þetta yrði ekkert mál? Well ég verð að segja fyrir mitt leyti að það er svo svakalega margt sem ég veit ekki og skil ekki. Hefði heldur ekki tíma til að setja mig inn í öll málin því við þurfum jú að vinna líka.
Talað var um 70% þjóðarinnar væri andvíg ríkisstjórninni skv frétt Fréttablaðsins á sunnudag. Skoðaði einhver fylgi flokkanna ef kosið yrði á ný skv sömu könnun? Jú sjáið til, Sjálfst.flokkur fengi 17 menn, Samfylking 23, Vg 19 og Framsókn fengi 4. Það var hringt í 800 manns og 49.9% tóku aftöðu um hverja þeir myndu kjósa..... 400 manns. Svona í alvöru, hver telur fólk að niðurstaða nýrra kosninga myndi skila? Fyrir utan tímasóunar og hrikalegs kosnaðar!

Æj ég gæti röflað um þetta endalaust. Mín skoðun er sú að leyfa þessu fólki að vinna. Þeim verður þá refsað í næstu kosningum. Eins og staðan er í dag þá er ég allavega ekki að sjá einhverja aðra sem ég vildi heldur hafa við stjórnartaumana (af þeim sem í boði eru). Treystir fólk Steingrími Joð og co eða Framsókn (hver sem í honum er núna) til að taka við stjórninni?? Nei svona í alvöru?
Auðvitað hafa verið gerð mörg mistök en ég er nokkuð viss um að staðan gæti verið verri!
Þeir sem vilja sjá breytingar, stofnið flokk! Komið með upplýstar og málefnalegar lausnir! Safnið 77 þús undirskriftum og fáið kosningar. En bara for the love of god þeir sem við á.... hættið að tala fyrir mína hönd!!!
Ps. Ég væri alveg til í að velja í allar stöður það fólk út í þjóðfélaginu sem ég teldi að væri hæft.... en ég geri mér grein fyrir að það er ekki lýðræði. Brjótum ekki gegn lýðræðinu í nafni lýðræðis.
Er annars bara slök

Verið góð við hvort annað.

Love, A
Læri-læri-lærAnna Lóa
Þá er þessi önn að fara líða undir lok þannig að ég er tilneydd til að fara gramsa eitthvað í skólatuðrunum. Skrýtnir tímar í gangi í þjóðfélaginu sem þýðir að auðvelt er að missa sig í lestri niðurdrepandi frétta og tapa þá einbeitingunni í verkefnum í mis-áhugaverðum fögum
Langar mest til að fara hella mér í jólaskreytingar og kökubakstur... já já svona er maður orðin mikið húsmóðir

Er ekki að vinna með skólanum í þetta sinn... sem er spes.... en gerir það að verkum að eftir 12 des (síðasta próf) get ég eytt allri minni orku í að dunda mér við undirbúning jólanna

Love, A
Og bíla-ævintýrin hefjast á ný....Anna Lóa
Ég er búin að vera voða lukkuleg með nýja bílinn minn síðan ég keypti hann. Fannst í fyrsta sinn sem ég hefði fest kaup á gallalausum grip. Í byrjun vikunnar fór hann hins vegar að verða pínu skrítinn og ljós um bilanir fóru að blikka óspart í mælaborðinu. Að sjálfsögðu var farið með gripinn upp í Öskju og hringdu þeir í dag til að upplýsa mig um hvert vandamálið væri.Í símanum var ungur og auðmjúkur drengur og heyrði ég strax á rödd hans að staðan var grafalvarleg. Hann talaði um að tvær súrefnissíur væru ónýtar og tannhjól í öxlinum væri brotið. Ég spurði hann svo hver kostnaðurinn væri við viðgerðina og varahluti. Hann ræskti sig og bar mér svo tíðindin á varfærinn hátt: "Jú sjáðu til, varahlutirnir kosta 260 þúsund". Ég hló svona hálf taugaveiklislega og bað hann um heildarkostnaðinn. Heildarkostnaðurinn er svona rétt rúmlega 300 þúsund. Í geðshræringunni þakkaði ég honum fyrir og bað hann að ganga í málið.
Þannig að.... minn ljúfi bíll er að fá 300þúsund króna jólagjöf í kreppunni. Hvað getur maður sagt... það kostar að reka bíl! *hóst*
Ritgerðirnar tvær búnar og Obama forseti :)Anna Lóa
Þetta er nú aldeilis ljúfur dagur. Vaknaði seint og fyrstu fréttir að Obama hefði sigrað í nótt! Skilaði tveimur ritgerðum sem ég galdraði fram í stjórnmálafræði og þungu fargi létt við það. Sé fram á busy nóvember mánuð í skólanum. Prófin byrja svo snemma í desember og ótrúlegt en satt að þá verð ég búin þann tólfta
Algjör lúxus miðað við að vera drattast í þessu fram að þorláksmessu hingað til.Hef annars ekkert að segja...
Love, A
